Íbúafundur á Blönduósi
Blönduósbær boðar til íbúafundar í Félagsheimilinu á Blönduósi mánudaginn 22. febrúar næstkomandi klukkan 17:00. Samkvæmt auglýsingu frá Blönduósbæ er fundurinn til upplýsinga og umræðna um verkefni bæjarins á næstunni. Íbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í íbúafundinum.
Dagskrá fundarins er:
Stuttar kynningar um eftirtalin verkefni:
Endurvinnslutunnur við öll heimili
Umferðarhraði í íbúagötum.
Önnur mál – Almennar fyrirspurnir og ábendingar.