Íbúafundur á Húnavöllum
Íbúar í Húnavatnshreppi eru boðaðir til almenns sveitarfundar á Húnavöllum á morgun, þriðjudaginn 23. apríl kl. 20:30. „Íbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum,“ segir á heimasíðu Húnavatnshrepps.
Á dagskrá fundarins verður m.a. skýrsla oddvita, kynning á ársreikningum Húnavatnshrepps vegna ársins 2012, fjarskiptamál þar sem Guðmundur R. Guðmundsson fulltrúi Emax tekur til máls og almennar umræður um málefni sveitarfélagsins.
Kaffiveitingar verða á fundinum.