Íbúafundur í Húnavatnshreppi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
25.04.2014
kl. 08.51
Sveitarstjóri Húnavatnshrepps hefur boðað til almenns sveitarfundar á Húnavöllum þriðjudaginn 29. apríl næstkomandi klukkan 20:30. Á dagskrá fundarins er m.a. skýrsla oddvita, kynning á ársreikningum sveitarfélagsins vegna ársins 2013 og almennar umræður um málefni Húnavatnshrepps.
Þá mun Guðmundur Sigurðsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Hvammstanga vera með framsögu um samgöngumál.Kaffiveitingar verða á fundinum og eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Skýrsla oddvita.
- Kynning á ársreikningum Húnavatnshrepps vegna ársins.
- Samgöngumál. Framsögu hefur Guðmundur Sigurðsson yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Hvammstanga.
- Almennar umræður um málefni sveitarfélagsins.