Íbúafundur um verndarsvæði í byggð á Blönduósi

Gamli bærinn á Blönduósi. Mynd: FE
Gamli bærinn á Blönduósi. Mynd: FE

Í dag, miðvikudaginn 11. október, kl. 17:00 verður haldinn almennur íbúafundur á Blönduósi um verndarsvæði í byggð. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi og verður þar kynnt tillaga og greinargerð til ráðherra um að gamli bæjarkjarninn á Blönduósi verði gerður að verndarsvæði í byggð. Fulltrúar frá Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur munu kynna verkefnið og ræða málin við íbúa og aðra hlutaðeigandi aðila, að því er segir í tilkynningu um fundinn á heimasíðu Blönduósbæjar.

Í tilkynningunni segir ennfremur: „Árið 2015 tóku gildi sérstök lög um verndarsvæði í byggð, en markmið laganna er að stuðla að verndun svæða sem talin eru hafa menningarsögulegt gildi. Samkvæmt lögunum ber sveitarstjórnum landsins að meta „hvort innan sveitarfélagsins sé byggð, sem hafi slíkt gildi“ og hvort ástæða sé til að útbúa tillögu til ráðherra um að hún verði gerð að verndarsvæði í byggð. Í samræmi við þetta fól sveitarstjórn Blönduósbæjar TGJ - Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur að taka saman tillögu og greinargerð til ráðherra um að gamli bæjarkjarninn á Blönduósi verði gerður að verndarsvæði í byggð.“

Saga gamla bæjarhlutans á Blönduósi er löng og merk en á síðasta ári voru liðin 140 ár síðan Blönduós fékk kaupstaðaréttindi og verslun hófst við vestari ósa Blöndu.  Þar hefur varðveist einstakur kjarni gamalla húsa, þeirra elstu frá 1877, og eins og segir í fundarboðinu geta fæstir þéttbýlisstaðir á Íslandi „státað af slíkum bæjarkjarna og því er mikilvægt að varðveisla hans og uppbygging takist vel til. Slíkt gæti falið í sér fjölbreytt tækifæri fyrir íbúa á Blönduósi og styrkt bæjarfélagið í heild sinni.“

Allir þeir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta á fundinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir