Íbúahátíð á Húnavöllum

Íbúahátíð verður í Húnavatnshreppi í dag, 11. ágúst. Verður hátíðin haldin á Húnavöllum og þar geta sveitungar hist og gert sér glaðan dag saman.

Hátíðin er á vegum Æskulýðs-, menninga- og íþróttamálanefndar Húnavatnshrepps og er þetta fimmta árið sem hún er haldin. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu hreppsins.

Dagskrá
Kl: 19 - 20  Sveitafitness o.fl.
Kl:  20  Grillað lambakjöt og pylsur í boði Húnavatnshrepps. Drykkir verða seldir á staðnum. Glens og grín ásamt varðeldi fram eftir kvöldi, þ.e eins og veður og stemmning leyfir.

Fleiri fréttir