Íbúar á Norðurlandi vestra hafa gert samninga um fyrirframgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar upp á rúman milljarð

Íbúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa frá apríl 2009, þegar fólki var heimilt að fá fyrirframgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar greidda, gert samninga um innlausn séreignasparnaðar upp á allt að 681 milljón króna fram að október 2012. Heimildin var háð ýmsum skilyrðum og gilti til ákveðins tíma en nú er vilji fyrir því að opna aftur fyrir þessa framkvæmd og verður umsóknartímabilið frá 1. okt. til 1. apríl 2012.

 

Við útborgun viðbótarlífeyrissparnaðar ber viðkomandi einstaklingum að greiða tekjuskatt af fjárhæðinni og njóta sveitarfélögin góðs af því í formi útsvars en það er veigamesti tekjustofn þeirra. Á heimasíðu Sambands íslenskra sveitafélaga er hægt að sjá þær upphæðir sem fólk hefur verið og er að innleysa (eftir sveitarfélögum) á fyrrnefndum samningstíma og hvað það gefur viðkomandi sveitarfélögum í útsvarstekjur sem þau annars hefðu ekki fengið fyrr en eftir mörg ár. Þar sést að Svf. Skagafjörður fær í útsvarstekjur tæplega 86 milljónir.

 

Ef skoðuð eru sömu mál hjá öðrum sveitarfélögum á Norðurlandi vestra kemur í ljós að íbúar; Blönduóss hafa gert samninga upp á tæpa 136 milljónir og útsvarstekjur Blönduóssbæjar þá rúmar 11 millj.

Skagastrandar, tæpar 99 millj.. útsv. rúmar 12 millj.

Húnaþings-vestra, rúmar 87millj., útsv. rúmar 11 millj.

Húnavatnshrepps tæpar 27millj., útsv. 3,4 millj.

Skagabyggðar rúmlega 11 millj., útsv. tæpar 1.4 millj. og

Akrahrepps tæpar 6 millj., og útsvarstekjur sveitarfélagsins rúmlega 750 þúsund.

Fleiri fréttir