Íbúar beðnir um að velja slagorð fyrir Húnaþing vestra

Við Sigríðarstaðaós. MYND FRÁ MARKAÐSSTOFU NORÐURLANDS
Við Sigríðarstaðaós. MYND FRÁ MARKAÐSSTOFU NORÐURLANDS

Nú geta íbúar Húnaþings vestra tekið þátt í netkönnun um val á slagirði fyrir sveitarfélagið sem er fremst á Norðurlandi. Á haustdögum 2023 var framkvæmd íbúakönnun á vegum Háskólans á Bifröst en í könnuninni var fólk m.a. beðið um að koma með hugmynd að slagorði fyrir Húnaþing vestra sem lýsti kjarna samfélagsins og hægt væri að nota í kynningarskyni.

Nokkrar tillögur bárust og hafa nú verið valdar fimm sem íbúar eru beðnir um að kjósa um. Einnig er hægt að koma með nýja hugmynd.

Hugmyndirnar eru:

   Húnaþing vestra - heimkynni hamingjunnar.
   Húnaþing vestra - lifandi samfélag.
   Húnaþing vestra - höfðingi heim að sækja.
   Húnaþing vestra - allt til alls.
   Húnaþing vestra - þar sem gott er að vera.

Svaraðu könnuninni hér >

Slagorðin hafa öll skírskotun til niðurstaðna rannsókna sem hafa leitt í ljós að íbúar í Húnaþingi vestra virðast ánægðari með sveitarfélagið sitt en íbúar þeirra sveitarfélaga sem við berum okkur saman við. Íbúar eru skv. könnunum einnig ánægðir með menningarlíf og afþreyingu í sveitarfélaginu. Jafnframt eru íbúar einnig skv. könnunum ánægðir með þjónustuframboð í sveitarfélaginu.

Þau sem vilja geta skráð netfang sitt og verður dregið úr innsendum svörum um gjafakort upp á 10 þús. kr. á einhvern þeirra framúrskarandi veitingastaða sem er að finna í sveitarfélaginu.

Sjá nánar á vef Húnaþings vestra >

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir