Íbúum á Norðurlandi vestra hefur fækkað um 28 frá fyrra ári
Hagstofan hefur birt upplýsingar um íbúafjölda í sveitarfélögum þann 1. janúar 2013. Á heimasíðu SSNV er hægt að nálgast töflu sem sýnir þróunina milli áranna 2011 og 2012 en þar sést að íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um tuttugu og átta manns. Mesta fækkunin er í Svf. Skagafirði eða um fjórtán og í Húnaþingi vestra um tíu.
Íbúum Svf. Skagastrandar og Blönduóss fjölgar hins vegar. Á Blönduósi fjölgar um sjö og á Skagaströnd um tvo. Konum fjölgar um fjórar á öllu svæðinu og eru alls 3598 en karlmönnum fækkar um 32 og teljast vera 3673 um síðustu áramót.
Í töflu SSNV hér fyrir neðan má sjá hvernig þróunin er á Norðurlandi vestra.