Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.168 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. september 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 533 íbúa, samkvæmt samantekt Þjóðskrár. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 209 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.219 íbúa eða um 6,0%. Íbúum Seltjarnarnesbæjar fækkaði hins vegar um 20 eða 0,4%.

Fjölgar hlutfallslega mest í Árneshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Árneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna níu mánuði eða um 12,2% en íbúum þar fjölgaði þó aðeins um 5 íbúa. Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 15 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 49 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum nema einum

Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 2.3% og fjölgar í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 4,9% sem er fjölgun um 1.426 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 2,7% á tímabilinu eða um 870 íbúa. Íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 24 eða um 0,3%.

Á Norðurlandi vestra fækkaði í öllum sveitarfélögum nema í Húnaþingi vestra þar sem 17 einstaklingar bættust við á íbúaskrána á þessu tímabili og teljast þeir nú vera 1.247. Mesta fækkunin er í Skagafirði þar sem 22 eru farnir og 13 færri eru á skrá í Húnabyggð en þar búa nú 1.301 maður. Á Skagaströnd fækkaði um fjóra og tvo í Skagabyggð og eru þá alls 480 manns á fyrrnefnda staðnum og 88 í þeim síðarnefnda. Alls búa 7.400 manns á Norðurlandi vestra.

Hér er hægt að nálgast skrá Þjóðskrár yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum 1. ágúst 2022 og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2021.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir