Ímynd Íslands sem fiskveiðiþjóð er stórbrotin

Ímynd Íslands sem ábyrgrar fiskveiðiþjóðar er því miður ekki til nema í hugum gráðugrar klíku LÍÚ sem hefur svo sannarlega steypt Íslandi á hausinn! Engin þjóð í heiminum stundar eins óábyrgar og ruddafengnar fiskveiðar líkt og íslendingar gera. Þetta segir Níels A. Ársælsson útgerðarmaður hér á Feyki.is í aðsendum greinum.

Níels segir að Íslendingar kasti í sjóinn árlega 35-50 þúsund tonnum af fiski sem ekki er æskilegt að koma með að landi vegna tegundar sinnar eða stærðar. -Gríðarlegt magn af þorskseiðum, ufsaseiðum og ýsuseiðum auk skötusels og grásleppu er drepið með flottrollinu og brætt í mjöl og lýsi. Íslendingar heimila þrælahald á sjómönnum kvótalausra skipa og neyða þá til að greiða 80-90 % af öllum sínum tekjum til þeirra útgerða sem fá kvótann gefins frá ríkinu 1. september ár hvert, segir Níels en hann telur upp nokkur sláandi dæmi í grein sinni um slæma umgengni útgerðar við náttúruna.

Grein Níelsar má finna HÉR

Fleiri fréttir