Ímynd Norðurlands

Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi býður til ráðstefnu og vinnufundar í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 28. febrúar 2o11 milli kl: 09:00 og 16:30 þar sem kynntar verða nýjar áherslur í markaðssetningu svæðisins.

Megin tilgangur og markmið ráðstefnunnar er að ræða, skoða og skilgreina ímynd Norðurlands, kalla eftir nýjum hugmyndum og áherslum í markaðssetningumeð þátttöku ráðstefnugesta.á ráðstefnunni verður einnig rætt um möguleikann á beinu millilandaflugi inn á Norðurland utan háannar og áhrif þess á atvinnulífið, ferðaþjónustuna og samfélagið.

Steingrímur Sigfússon fjármálaráðherra mun setja ráðstefnuna kl. 09:00 en síðan munu sex erlendir sem innlendir fyrirlesarar taka við og ræða hin ýmsu mál er snerta þessi brýnu hagsmunamál Norðlendinga.

Skráningar til þátttöku á ráðstefnunni þurfa að berast á netfangið  maria@nordurland.is   fyrir hádegi föstudaginn 25. febrúar.

Fleiri fréttir