Inflúensa og hlaupabóla á ferðinni
Inflúensa B hefur hrjáð landann síðustu vikur en samkvæmt vefnum influensa.is hefur fjölgun tilfella verið mest meðal barna og unglinga en fyrri reynsla sýnir að inflúensa B kemur á nokkurra ára fresti og leggst aðallega á börn og unglinga.
Ekkert hefur dregið úr fjölda tilkynninga um inflúensulík einkenni sem hafa borist til sóttvarnalæknis síðastliðna daga og því ekki vitað hvort inflúensan hefur náð hámarki. Árleg inflúensubólusetning gefur vörn gegn inflúensu B.
Til viðbótar við flensuna hefur hlaupabóla stungið niður fæti í Skagafirði og hafa ófá börnin farið heim með þennan óskemmtilega gest í farteskinu.