Inga María framkvæmdastjóri USAH
Nýr framkvæmdarstjóri USAH, Inga María Baldursdóttir, hefur tekið til starfa og verður opnunartími skrifstofu virka daga milli kl. 10:00 og 14:00. Nýjir USAH gallar frá Henson verða til sýnis og mátunar frá 8. júní til 16. júní á opnunartíma skrifstofu. Hægt er að panta galla með því að senda póst á usah@simnet.is og fá nánari upplýsingar í síma 452-4929.
Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið á Hvammstanda 24. – 26. júní og fer skráning fram á skrifstofu USAH fyrir 16. júní. Nánari upplýsingar um mótið er hægt að fá á landsmotumfi50.is
Frjálsíþróttaæfingar USAH fyrir 10 ára og eldri eru hafnar og verða á miðvikudögum frá kl. 20:00 -21:30 á Blönduóssvelli, þjálfari verður Inga María Baldursdóttir.
Mót sumarsins verða eftirfarandi:
Barnamót USAH í Húnaveri verður haldið 6. júlí kl. 18:00.
Héraðsmót USAH á Blönduóssvelli verður haldið 11.-12. júlí kl. 18:00 báða dagana.
Minningarmót Þorleifs Arasonar á Vorðboðavelli verður haldið 10. ágúst kl. 18:00.