Innköllun fóðurs í 35 kg smásekkjum
Fóðurblandan innkallar allt húsdýrafóður í 35 kg smásekkjum sem hefur pökkunardagsetningu frá 4. júlí til 29. ágúst, 2013. Aðgerðin er gerð í samræmi við aðgerðaráætlun gæðakerfis fyrirtækisins vegna gruns um salmonellu smit.
Sekkjum skal skilað á útsölustaði eða til Fóðurblöndunnar Korngörðum 9 og þar geta viðskiptavinir fengið endurgreitt eða aðrar vörur í staðinn.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fóðurblöndunnar í síma 570-9800.