Ís-landsmót á Svínavatni á morgun
Á morgun fer fram hið árlega Ís-landsmót á Svínavatni. Mótið hefur notið vaxandi vinsælda meðal hestamanna og koma margir um langan veg til að taka þátt og sennilega hafa skráningar aldrei verið fleiri að þessu sinni. Keppt verður í A og B flokki og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulagð er með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár.
Gerður hefur verið samningur milli Hestafrétta og Ís-landsmóts um að mótið verði allt tekið upp og verði aðgengilegt á vefnum hestafrettir.is fljótlega að því loknu.
Aðal styrktaraðilar mótsins eru þeir sömu og í fyrra, en það eru:
- § Hrossaræktarbúið Sunnaholt í Þýskalandi býður upp á töltkeppnina.
- § Landsvirkjun býður upp á A flokkinn.
- § Húsherji ehf. Svínavatni Húnavatnshreppi býður upp á B flokkinn.
- Einnig bætist Creditinfo við sem aðalstyrktaraðili vegna kynningarmála og upptöku af mótinu.
Veitingar verða seldar á svæðinu s.s. heitir drykkir, heitar samlokur, pylsur, kleinur, pönnukökur o.fl. Ekki verður hægt að nota kort þannig að fólk þarf að hafa meðferðis einhverja aura. Ekki verður selt inn, en skrár verða til sölu á 1.000. kr. Salernisaðstaða verður á staðnum og einnig í Dalsmynni við Auðkúlurétt. Dagskránni verður útvarpað á svæðinu á FM 103,7.
Dómarar verða Ámundi Sigurðsson og Sigrún Ólafsdóttir gæðinga og hestaíþróttadómarar. Þulur verður Jón Kristófer Sigmarsson. Vallarstjóri verður Indriði Karlsson. Gunnar Ríkharðsson sér um tölvuvinnslu og mótsstjóri verður Ægir Sigurgeirsson.
Mótið byrjar klukkan 10 á B-flokki síðan A-flokki og endar á tölti.
Heimasíða mótsins er www.is-landsmot.is.
/Húni.is