Íslandmót í boccia hefst í kvöld á Sauðárkróki

Gróska íþróttafélag fatlaðra í Skagafirði heldur Íslandsmót í boccia í íþróttahúsinu á Sauðárkrók dagana 24. – 26. október í samvinnu við Íþróttasamband fatlaðra og er það einstaklingskeppni. Keppendur verða um 220 og koma af öllu landinu en keppt verður í sjö deildum og bc flokkum.

Mótið hefst í kvöld klukkan 19:00 með mótsetningu og keppni í 7. deild og verður svo keppni framhaldið á morgun og laugardag. Mótinu lýkur svo með lokahófi í Miðgarði. Kiwanisklúbburinn Drangey mun sjá um dómgæsluna og Lionsklúbburinn Víðarr gefur öll verðlaun.

Fleiri fréttir