Íslandsmót í torfæru á Blönduósi
Fjórða og jafnframt síðasta umferð Íslandsmótsins í torfæru fer fram á Blönduósi, á laugardaginn næstkomandi.
Samkvæmt heimasíðu Mótorsport verður keppt í tveimur flokkum, það er götubílaflokk og sérútbúnum.
Þeir sem berjast helst um Íslandsmeistaratitilinn í götubílaflokki eru Stefán Bjarnhéðinsson með 58 stig og er jafnframt stigahæstur á mótinu og Ívar Guðmundsson með 52 stig.
Þeir sem takast helst á um titilinn í flokki sérútbúna eru Ólafur Bragi Jónsson, sem leiðir mótið með 50 stig og Jóhann Rúnarsson með 43 stig. Leó Viðar Björnsson kemur fast á eftir með 38 stig.
Keppnin hefst kl. 13 og miðaverð er 1500 kr.