Ísmót á Svínavatni

Frá ísmóti .Mynd:is-landsmot.is/
Frá ísmóti .Mynd:is-landsmot.is/
Ákveðið hefur veri að efna til ísmóts á Svínavatni við Stekkjardal á laugardaginn kemur, 11. mars klukkan 13:00. Keppt verður í tölti í opnum flokki, flokki áhugamanna og 16 ára og yngri svo sem verið hefur. Riðin verður ein ferð á hægu tölti, tvær ferðir hraðabreytingar og ein ferð á yfirferðartölti.

Bæjarkeppni með firmakeppnissniði fer fram að tölti loknu.

Skráning berist fyrir klukkan 20:00 föstudaginn 10. mars á netfangið valur@gamar.is. Skráningargjöld eru 1.000 krónur.

Fleiri fréttir