Ísmótinu á Svínavatni frestað um viku
Ákveðið hefur verið að fresta Ísmótinu á Svínavatni til 9. mars þar sem ekki er talið öruggt að aðstæður verði nógu góðar þann 2. mars. Á heimasíðu Neista segir að það sem veldur er að túnin sem notuð eru fyrir bílastæði eru orðin þíð á yfirborðinu og því gætu orðið vandræði með að komast um þau með bíla og kerrur. Veðurspá gerir ekki ráð fyrir að það verði farið að frysta að ráði á laugardag.
Ennfremur segir á heimasíðunni að reiknað er með töluverðu frosti um helgina og fram eftir næstu viku þannig að kjöraðstæður ættu að á svæðinu þann 9.mars.
Vegna þessa framlengist skráningafrestur um viku. Skráningar berist á netfangið thytur1@gmail.com í síðasta lagi þriðjudaginn 5. mars. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru; A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á skráningu.
Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur. Vegleg peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki.