Ísólfur og Þórarinn efstir og jafnir
Mikil spenna er komin í liðakeppni KS-Deildarinnar. Jafnir að stigum og efstir eru þeir Ísólfur Líndal og Þórarinn Eymundsson með 37 stig. Á eftir þeim kemur svo Bjarni Jónasson með 34 stig. Það er mjög mjótt á munum og getur allt gerst í svona harðri keppni.
Lið Hrímnis leiðir liðakeppnina nokkuð örugglega með 91 stig, en mikil spenna er þar fyrir neðan. Það er nóg af stigum eftir í pottinum og verður því lið Hrímnis að standa sig ef þau ætla að halda forustunni.
Næsta mót í KS-Deildinni verður haldið miðvikudaginn 26.mars en þá verður keppt í tölti.
Staðan í deildinni er eftifarandi:
Einstaklingskeppni:
Ísólfur Líndal 37
Þórarinn Eymundsson 37
Bjarni Jónasson 34
Mette Mannseth 32
Líney María 30
Hörður Óli 24
Elvar Einarsson 22,5
Baldvin Ari 20,5
Gísli Gíslason 18,5
Vigdís Gunnarsdóttir 17
Sigvaldi Lárus 16
Tryggvi Björnsson 16
Arnar Bjarki 15,5
Þorbjörn Matthíasson 15,5
Viðar Bragason 14
Sölvi Sigurðarson 13,5
Jóhann Magnússon 10,5
Hlín Mainka 6,5
Liðakeppni:
Hrímnir 91
Laekjamot.is 67,5
Draupnir/Þúfur 66
Weierholz 60,5
Topreiter/S-Skörðugil 59
Björg/Fákasport 36