Ítarlegt vefrit um kjöt aðgengilegt á Netinu

Nýr upplýsingavefur um kjöt var opnaður fyrir helgi á vefslóðinni www.kjotbokin.is. Samkvæmt Bbl.is var það Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, sem opnaði vefinn formlega þegar hann hringdi í höfuðstöðvar Matís ofan af Holtavörðuheiði en þar var hann í göngum ásamt fleiri Borgfirðingum.

 

Vefritið kemur í stað gömlu kjötbókarinnar

Í kjötbókinni, sem er ítarlegt vefrit um kjöt, verður til að byrja með einungis að finna upplýsingar um lambakjöt en aðrar kjöttegundir munu koma í kjölfarið ef áætlanir útgefanda ganga upp. Vefritinu er ætlað að koma í staðinn fyrir gömlu kjötbókina sem gefin var út árið 1994 en hefur ekki verið fáanleg um nokkurn tíma. Markhópur bókarinnar er fjölbreyttur en víst er að nýja útgáfan mun koma sér vel í kjötvinnslum, hjá sláturhúsum, nemendum, bændum og ekki síst kjötkaupendum sem vilja fræðast um kjötvörurnar. Aðgangur að kjötbókinni er ókeypis og ekki er fyrirhugað að selja aðgang að vefnum í framtíðinni.

Nánar á Bbl.is

Fleiri fréttir