Íþróttadagur grunnskólanna í Húnaþingi 2013
Íþróttadagur grunnskólanna í Húnaþingi var haldinn í Húnavallaskóla í síðustu viku en íþróttadagurinn er árlegur viðburður sem skólarnir í sýslunum skiptast á að halda. Það eru nemendur úr 7. – 10. bekk sem keppa í hinum ýmsu íþróttagreinum fyrir sinn skóla eða hvetja sitt fólk til dáða. Um tvöhundruð einstaklega prúðir og skemmtilegir krakkar mættu að þessu sinni.
Á heimasíðu Húnavallaskóla segir að keppt hafi verið í körfubolta, fótbolta, skák og borðtennis en dagskráin hófst um kl. 16:00 og lauk ekki fyrr en um um kl. 22:00með diskóteki og afhendingu verðlauna.
Blönduskóli hlaut felst stig eða 28 og fór því heim með bikarinn þetta árið. Húnavallaskóli og Grunnskólinn í Húnaþingi vestra voru jöfn í 2.-3. sæti með 19 stig og Höfðaskóli í fjórða sæti með 14 stig.
Myndir frá deginum má sjá HÉR.