Jákvæður rekstur Skagastrandar

Sveitarstjórn Skagastrandar tók fyrir á síðasta fundi sínum  endurskoðunarbréf  Davíðs Búa Halldórssonar, endurskoðanda sveitarfélagsins sem m.a. innihélt samantektir á helstu niðurstöðum ársreiknings. Í bréfinu koma ekki fram neinar athugasemdir sem sveitarstjórn þarf að bregðast við.

Þá lá fyrir fundinum ársreikningur sveitarsjóðs og stofnana sem var til fyrri umfjöllunar 11. apríl 2012. Í honum kemur fram að rekstrartekjur samstæðunnar voru 476 m.kr. og  rekstrargjöld 457 m.kr. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 18 m.kr. en rekstrarniðurstaða eftir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 17,5 m.kr.
Eigið fé samstæðu í árslok 2011 nam 1.268 millj.kr. samkvæmt efnahagsreikningi, Eiginfjárhlutfall samstæðu var 75,4% í lok árs 2011 en var 75,0% árið 2010. Veltufjárhlutfall samstæðunnar nam 23,19 en var 20,0 árslok 2010. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri samstæðunnar 68,9 m.kr. og handbært fé frá rekstri 64,7 m.kr. Engin ný lán voru tekin á árinu.
Handbært fé samstæðunnar nam 568 m.kr. í árslok en var 543 m. kr. í árslok 2010. Auk þess kemur fram í efnahagsreikningi að eign í ríkisverðbréfum nam 194 m. kr. í fundargerð segir að sveitarstjórn hafi rætt ársreikninginn og samþykkt hann að lokinni umræðu.

 

Fleiri fréttir