Jeppi varð eldi að bráð á Blönduósi

Eldur kviknaði í jeppa sem stóð við blokkina að Hnjúkabyggð 27 á Blönduósi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt frétt Mbl.is urðu engin slys á fólki en jeppinn er gjörónýtur.

Á Mbl.is kemur fram að ekki hafi verið mikil hætta á ferðum en slökkviliðinu tókst að fjarlægja jeppann frá blokkinni áður en eldur barst í hana. Eldsupptök eru ókunn.

Fleiri fréttir