Jólablað Feykis er komið út
Jólablað Feykis er komið út. Blaðið er 44 litprentaðar síður og er því dreift ókeypis inn á öll heimili á Norðurlandi vestra. Efni blaðsins er að vanda fjölbreytt og komið víða við. Forsíðumynd blaðsins er eftir Gunnhildi Gísladóttur ljósmyndara.
Meðal efnis í jólablaðinu þetta árið er opnuviðtal við Sigurð Líndal Þórisson og Gretu Clough, sem nýverið færðu sig úr sviðsljósinu í London í sjávarsæluna á Hvammstanga. Þá er fjallað um bataferli hins sextán ára gamla Páls Þórðarsonar á Blönduósi, sem greindist með krabbamein í beinvef fyrir tveimur árum og Hallgrímur Eymundsson og Rúnar Björn Herrera segja frá ævintýralegum jólum í Austurlöndum fjær.
Sölvi Sveinsson svarar spurningum í Jóla-Tónlystinni, sr. Halla Rut Stefánsdóttir skrifar jólahugleiðingu og sagt er frá óveðrinu 1935, sem varð fjölda manns að fjörtjóni. Konurnar í kvenfélagi Svínavatnshrepps bjóða upp á dásamlegar uppskriftir, jólabjórinn er smakkaður í Bjórsetrinu á Hólum og Gísli Einarsson ritstjóri Landans eldar önd í jólabruggi. Spjallað er við Sigurfinn Jónsson veiðimann sem á 1307 rjúpnaveiðiferðir að baki.
Myndagátan eftir Pál Friðriksson er á sínum stað, sem og umfjallanir um bækur og geisladiska sem koma út fyrir þessi jól. Þá er rætt við lesendur um jólin frá ýmsum sjónarhornum. Þetta og margt fleira í jólablaði Feykis, sem er aðgengilegt á forsíðu Feykis.is (til hægri) eða með því að smella hér.