Jólabókakvöld í Bjarmanesi á Skagaströnd

Á miðvikudaginn kemur, þann 11. desember, stendur Gleðibankinn fyrir upplestri úr jólabókum á jólabókakvöldi sem haldið verður í Bjarmanesi á Skagaströnd. Það eru heimamenn sem lesa upp úr bókunum og hefst upplesturinn kl. 20.00.

Heimamenn lesa upp úr eftirtöldum bókum:

María Ösp Ómarsdóttir: Alla mína stelpuspilatíð

Ingibjörg Kristinsdóttir: Andköf

Trostan Agnarsson: Í norðanvindi og vestanblæ

Magnús B. Jónsson: Guðni - léttur í lund

Magnús Örn Stefánsson: Útkall - lífróður

Valdimar Jón Björnsson: Árleysi alda

Bryndís Valbjarnardóttir: Sæmd

Guðrún Pálsdóttir: Við Jóhanna

Einnig taka Guðmundur og Jonni nokkur létt jólalög. Aðgangur ókeypis og eru allir boðnir hjartanlega velkomnir. Bjarmanes verður með kakó, nýja kafdrykki og smákökur til sölu.

Fleiri fréttir