Jólahús ársins á Blönduósi valið

Sú hefð hefur skapast á Húnahorninu í desember að velja Jólahús ársins á Blönduósi. Um er að ræða samkeppni um fallega jólaskreytt hús, hvort sem það er íbúðarhús eða fyrirtækjahús. Samkeppnin um Jólahúsið 2010 verður með svipuðu sniði og síðust ár. Til að taka þátt í samkeppninni er tilnefning send inn í gegnum rafrænan atkvæðaseðil sem staðsettur er á forsíðu Húnahornsins.

Hverjum og einum er heimilt að senda inn eina tilnefningu. Það hús sem fær flestar tilnefningar verður valið Jólahús ársins 2010 á Blönduósi. Samkeppnin stendur til miðnættis 30. desember og verða úrslit gerð kunn á síðasta degi ársins.

Þetta er í níunda sinn sem Húnahornið stendur fyrir kosningu um Jólahús ársins á Blönduósi.

Fleiri fréttir