Jólakrossgátan - Hvar er jólakötturinn
Alls bárust 49 réttar lausnir í Jólakrossgátu Feykis en að þessu sinni var spurt um gamalt meindýr sem sást um jólin í „gamla daga“ en virðist nú vera dautt úr hor. Lausnarorðið var sem sagt: Hvar er jólakötturinn. Þrír heppnir krossgátulausnarar voru dregnir upp úr pottinum og eiga von á glaðningi með póstinum.
Klara Rún Birgisdóttir Urðarbraut 5 Blönduósi fær glæsibókina Eldað undir bláhimni – Sælkeraferð um Skagafjörð, Uni Dalmann Guðmundsson Dalatún 2 Sauðárkróki fær jólasveifluplötu Geirmundar Valtýssonar Jólastjörnur og Guðríður B. Helgadóttir D. 6. Sauðárhæðum Sauðárkróki fær spennubókina Andköf eftir Ragnar Jónsson.
Feykir þakkar öllum fyrir þátttökuna og óskar vinningshöfum til hamingju.