Jólaljósin tendruð á Blönduósi
Jólaljósin verða tendruð á jólatrénu frá Gunnfríðarstöðum á morgun, sunnudaginn 9. desember, klukkan 17:00 við Blönduóskirkju.
Á heimasíðu Blönduósbæjar kemur fram að jólatréð í ár kemur úr skógrækt Húnvetninga á Gunnfríðarstöðum og hefur verið reist á kirkjuhólnum. Að aflokinni aðventumessu í Blönduósskirkju, um klukkan 17:00 á morgun verða ljósin á jólatrénu tendruð.
„Sungin verða jólalög og fregnir herma að jólasveinar verði komnir á stjá og taka þeir örugglega lagið með viðstöddum,“ segir loks á heimasíðunni.