Jólamarkaður á Hvammstanga - Feykir TV

Hinn árlegi jólamarkaður var haldinn í fimmta sinn síðustu helgi í félagsheimilinu á Hvammstanga. En hann hefur skipað sér traustan sess í jólahaldi íbúa og kemur fólk víða að af landinu til að taka þátt og hafa gaman. Ýmsar vörur voru til sölu á markaðnum líkt og undanfarin ár. Þar má nefna, mömmukökur og kleinur, ullarvörur, útskurðarmunir, ostar, sósur, myndir, dagatöl og margt margt fleira.

 

http://www.youtube.com/watch?v=W4R4Wv22WQ8&feature=youtu.be

Fleiri fréttir