Jólamarkaður verður haldinn í félagsheimilinu á Hvammstanga laugardaginn 2. desember milli kl. 12 og 16. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að hægt verður að festa kaup á einstakan varning sem er tilvalinn í jólapakkann, ljúffengt góðgæti og jólaandinn verður að sjálfsögðu á staðnum.
Ennþá er hægt að bæta við söluborðum á markaðinn ef þú ert með varning, mat eða gjafavöru til sölu og hefur áhuga á að vera með.
Fyrir nánari upplýsingar skal hafa samband með tölvupósti til thorunnyr@centrum.is