„Jólanna hátíð er“ er jólalag Rásar 2
Nú er búið að velja sigurlagið í Jólalagakeppni Rásar 2 árið 2016 og heitir það „Jólanna hátíð er“. Lag þeirra Kristjáns Bjarna Halldórssonar og Reynis Snæs Magnússonar „Jólin koma“ endaði í því öðru.
Á Rúv.is segir að rúmlega sextíu lög hafi borist í keppnina en sjö þeirra hafi verið valin í úrslit. Þau kepptu um hylli hlustenda og dómnefndar og sigraði Jólanna hátíð með nokkrum yfirburðum.
Sigurlagið, sem flutt er af hljómsveitinni Karma Brigade og kór Kársnesskóla, er eftir þær Guðrúnu Ólafsdóttur og Agnesi Wild.
Lag þeirra Kristjáns og Reynis má heyra HÉR
Aðstandendur sigurlagsins hljóta að launum veglega vinninga frá Tónastöðinni, Svefni og heilsu og Sjávargrillinu.