Jólasögustund á Spákonuhofi
Sögustund verður í Spákonuhofi á Skagaströnd í dag kl. 17. Þar verða lesnar jólasögur fyrir börn á öllum aldri og allir eru hvattir til að koma með jólaskapið og gleðina.
Litla sölubúðin í Spákonuhofi verður líka opin frá kl. 17-19 en þar er m.a. hægt að fá bækur, prjónavörur, jólaservíettur, jólalöbera með laufabrauðamunstri, kerti, spil, sápur og fleira skemmtilegt.
Enginn aðgangseyrir og heitt verður á könnunni.