Jólatónleikar Siggu Beinteins
Sigga Beinteins verður með jólatónleika í Hólaneskirkju annað kvöld, þriðjudaginn 18. desember, kl. 20:00. Þar flytur hún að stórum hluta dagskrána sem hún var með á tónleikum í Háskólabíó á dögunum. Með henni í för verða Friðrik Karlsson gítarleikari og Grétar Örvarsson hljómborðsleikari.
Á heimasíðu Skagastrandar segir að þetta verða hugljúfir og einlægir tónleikar á persónulegum nótum. Aðgangur er öllum án endurgjalds.
Tónleikarnir eru í boði Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli.