Jólatré á Hnappstaðatúni tendrað í dag

Kveikt verður á jólatrénu á Hnappstaðatúni á Skagaströnd í dag, föstudaginn 30. nóvember kl. 17:00. Samkvæmt heimasíðu Skagastrandar er vonast til þess að nokkrir jólasveinar mæti að venju, þótt opinber starfstími þeirra hefjist ekki fyrr en eftir nokkra daga.

„Börn eru hvött til að koma með foreldra sína og rifja upp jólalögin,“ segir loks á heimasíðunni.

 

Fleiri fréttir