Jólin alls staðar á Sauðárkróki 10. des
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
27.11.2013
kl. 09.25
Þann 3. desember hefst hin einstaka tónleikaröð Jólin alls staðar þar sem söngvararnir Greta Salóme, Friðrik Ómar, Heiða Ólafs og Jógvan Hansen heimsækja kirkjur vítt og breitt um landsbyggðina ásamt einvalaliði tónlistarmanna. Þau koma víða við og eru nú þegar áætlaðir yfir tuttugu tónleikar. Í Sauðárkrókskirkju syngja þau þann 10. des. kl 20:00.
Í tilkynningu frá söngvurunum segir að efnisskráin sé hátíðleg en í senn skemmtileg og því tilvalin fyrir alla fjölskylduna. Auk þeirra koma fram barnakórar frá hverjum stað fyrir sig.
Miðasala er í fullum gangi á midi.is og en einnig er hægt að kaupa miða við innganginn svo framarlega sem ekki sé uppselt.