Jón Árni vann eldvarnargetraun
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
18.02.2014
kl. 09.01
Jón Árni Jónsson nemandi í Blönduskóla vann eldvarnargetraun sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna efndi til við lok Eldvarnarviku, sem haldin var í nóvember sl.
Sambandið stendur fyrir árlegu eldvarnarátaki í samvinnu við fagaðila og slökkviliðin í landinu. Þá eru öll börn í 3. bekk heimsótt og frædd um eldvarnir á heimilum og þær helstu hættur sem ber að varast.
Það var Jón Jóhannsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna A-Hún. sem heimsótti Jón Árna í skólann og afhenti honum verðlaunin sem voru m.a. 10.000 króna seðill og reykskynjari.
Heimild: Húni.is