Jón Bjarnason hættur í Vinstri-grænum
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
23.01.2013
kl. 15.40
Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur sagt sig úr þingflokki Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Í fréttatilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir stundu kemur fram að hann muni starfa á Alþingi sem þingmaður utan þingflokka.
