Jón tilkynnir starfslok

Jón F. Hjartarson skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra frá stofnun skólans tilkynnti á dögunum starfsfólki sínu að hann hygðist hætta störfum á komandi hausti.

Jón hefur alla tíð unnið mikið og gott brautryðjandastarf í uppbyggingu skólans og skilar til þeirra er við taka metnaðarfullri menntastofnun sem sinnir hlutverki sínu með miklum sóma.

Þá má geta þess í tilefni tímamóta Feykis að Jón var einn af stofnendum þess ágæta blaðs á sínum tíma.

Fleiri fréttir