Júdófélagið Pardus verðlaunað fyrir útbreiðslustarf

Júdófélagið Pardus á Blönduósi var verðlaunað fyrir útbreiðslustarf á dögunum en það er yngsta júdófélagið á Íslandi. Félagið var stofnað í fyrra og eru yfir 40 iðkendur hjá félaginu.

Samkvæmt heimasíðu Júdósambands Íslands fór verðlaunaafhendingin fram að lokinni Sveitakeppni JSÍ sem fór fram helgina 17. - 18. nóvember en þá var tilkynnt val á júdómönnum ársins 2012, ásamt áðurnefndum verðlaunum fyrir útbreiðslustarf. Þormóður Jónsson úr ÍR og Ásta Lovísa Arnórsdóttur úr ÍR voru valin júdómenn ársins 2012.

Fleiri fréttir