Kafað í Húnaflóa (The Dips #4)
Nes listamennirnir, Runar Bruteig Olsen og Anita Bjørkli, ásamt Markúsi Inga Guðnasyni, standa fyrir innsetningu og gjörningi í Félagsheimilinu Fellsborg, sunnudaginn 15. febrúar nk., kl. 15-17. The Dips hefur áður verið flutt í Bergen og Stamsund í Noregi og Vilnius í Litháen.
Í fréttatilkynningu frá Nes kemur fram að innsetningin taki mið af teikningum barna í Frístund í Höfðaskóla og hefst kl. 15:30.
„Verið velkomin á viðburð með flutningi hljóð- og videomynda frá Skagaströnd. Njótið þess að skoða teikningar barnanna meðan hægt er að leika á gagnvirka innsetningu. Þannig má upplifa hljóð og myndverk sem Skagaströnd hefur sjálf unnið. Þannig er hægt að upplifa Skagaströnd, bæði í hljóð og mynd,“ segir í tilkynningunni.
Aðgangur er ókeypis. Snakk og hressing í boði.