Kafari að störfum
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
14.03.2014
kl. 16.03
Krakkarnir á deildinni Lundi í Leikskólanum Barnabóli fóru í vettvangsferð á hafnarsvæðið á Skagaströnd í gær. Þau voru svo heppin að sjá kafara við vinnu sína við bát í höfninni, eins og segir í frétt á vef leikskólans.
Það var mikil upplifun að sjá hann fara á bólakaf og kom upp úr sjónum í kafaragallanum og með allan búnaðinn.
Fleiri fréttir
-
Flest í þokkalegri rútínu
Bessi Freyr Vésteinsson í Hofsstaðaseli, nánar tiltekið í Viðvíkursveit í Skagafirði, býr þar ásamt konu sinni Sólrúnu Ingvadóttur. „Einnig búa hér sonur okkar Ingvi Þór Bessason og kona hans Fanndís Viðarsdóttir ásamt sonum þeirra Braga Frey sex ára, Bjarka Viðari fjögurra ára og Birki Þór tveggja ára.“ Öll vinna þau við reksturinn auk 4-6 starfsmanna, en það fer aðeins eftir árstíma. Feykir heyrði í Bessa til að taka stöðuna í sveitinni en viðtalið var birt í fréttablaðinu Feyki í byrjun febrúar á þessu ári.Meira -
Stólastúlkur náðu í stig gegn liði Vals í fyrsta sinn
Í gær mættust lið Tindastóls og Vals í Bestu deild kvenna og var spilað við ágætar aðstæður á Króknum. Úr varð hörkuleikur og fór svo að lokum að liðin deildu stigunum en lokatölur voru 2-2. Þetta var í fyrsta skipti sem Stólastúlkur ná í stig gegn liði Vals og máttu eiginlega vera svekktar með að þau urðu ekki fleiri.Meira -
Taiwo beit á Krókinn á ný
Það stefnir í alvöru hvítasunnuhelgi hjá stuðningsmönnum Tindastóls í körfunni. Í gær var Arnar Guðjónsson kynntur til sögunnar sem næsti þjálfari meistaraflokks karla og í morgun laumaði körfuknattleiksdeild Tindastóls út í kosmósið myndbandi þar sem Taiwo okkar Badmus tilkynnir endurkomu sína á Krókinn.Meira -
„Ungt fólk sjálfstæðara og ákveðnara en áður“
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 07.06.2025 kl. 13.17 oli@feykir.isEins og fram hefur komið þá láta nú af störfum þrír máttarstólpar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og þar með talinn skólameistarinn sjálfur. Ingileif Oddsdóttir tók við starfi skólameistara af Jóni F. Hjartarsyni árið 2011 en þau tvö eru ein um að hafa gegnt þessari stöðu í 46 ára sögu skólans sem er auðvitað magnað í sjálfu sér. Feykir lagði nokkrar spurningar fyrir Ingileif.Meira -
Þrír hressir hundar á heimili Gunndísar | Ég og gæludýrið mitt
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni, Ég og gæludýrið mitt 07.06.2025 kl. 13.03 siggag@nyprent.isÍ þessum gæludýraþætti ætlum við að fara yfir á Skagaströnd en þar býr Gunndís Katla Þrastardóttir og fjölskyldan hennar. Gunndís er á þrettánda ári og er dóttir Vigdísar Elvu Þorgeirsdóttur, kennara í Höfðaskóla, og Þrastar Árnasonar, sjómanns á Drangey SK-2. Hún á einnig eina systur og tvo bræður. Það má svo ekki gleyma öllum loðdýrunum á heimilinu en þau eiga þrjá hunda, Óm, Dreka og Brúnó. Feyki langaði að forvitnast aðeins um gæludýrin hennar Gunndísar og sendi henni nokkrar spurningar.Meira