Kaffi Króks Sandspyrnan 2013
Bílaklúbbur Skagafjarðar, í samstarfi við Bílaklúbb Akureyrar og Kaffi Krók, ætlar að halda sandspyrnu í landi Garðs í Hegranesi þann 22. Júní 2013 og hefst keppni kl 13.00.
Stjórn Bílaklúbbs Skagafjarðar vill hvetja sem flesta til að mæta og sjá helstu græjur landsins spreyta sig á sandinum. Aðgangseyrir er 1.000 kr og sjoppa verður á staðnum.
Skráning í sandspyrnuna fer fram í tölvupósti á netfanginu rally@fjolnet.is og það sem koma þarf fram við skráningu er:
Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb. Athuga að allir bílar sem eru götuskráðir þurfa að framvísa tryggingaviðauka.
Skráningu lýkur miðvikudaginn 19. júní nk. kl. 23:59.
Keppnisgjald er 5.000 kr. og skal greiðast inn á reikning:
310-26-2360, kt. 520601-2360
Vinsamlegast sendið staðfestingu á rally@fjolnet.is.
Vinsamlegast athugið að skráning telst ekki gild nema keppnisgjald sé greitt áður en skráningu lýkur.
Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna hér.
Inni á heimasíðu Bílaklúbbs Skagafjarðar er upplýsingatafla keppninnar. Keppnisstjóri er Þórður Guðni Ingvason.