Kaffi og kleinutónleikar í Blönduóskirkju

Miðvikudagskvöldið 27. júlí næstkomandi klukkan 20 verða Kaffi og kleinutónleikar í Blönduóskirkju. Flytjendur eru Jóna Fanney Svavarsdóttir, sópran. Erlendur Þór Elvarsson, tenór og Sólveig Sigríður Einarsdóttir á píanó. Á dagskrá tónleikanna verða gömul góð íslensk lög.

Á dagsskránni eru gömlu góðu íslensku lögin, m.a. Draumalandið eftir Sigfús Einarsson, Íslenskt vögguljóð á Hörpu eftir Jón Þórarinsson, Nótt eftir Árna Thorsteinsson og Ég lít í anda liðna tíð eftir Sigvalda S. Kaldalóns ásamt mörgum fleiri perlum íslenskra tónsmíða.

Eftir tónleika verður boðið uppá kaffisopa og kleinur.

Flytjendur eru:

Jóna Fanney Svavarsdóttir, sópran

Erlendur Þór Elvarsson, tenór

Sólveig Sigríður Einarsdóttir, píanó

Fleiri fréttir