Kaffi og með því í Nes listamiðstöð
Nes listamiðstöð á Skagaströnd býður fólki í heimsókn í dag til kl. 14 og jafnvel lengur. Boðið er upp á samlokur, köku, kaffi og létt spjall við listamennina sem dvelja þar um þessar mundir.
„Við vonumst til að sjá sem flesta!“ segir í fréttatilkynningu frá listamiðstöðinni.