Kaldalóns á Blönduósi í kvöld
Kómedíuleikhúsið verður á ferðinni á Blönduósi í kvöld, föstudag 2. nóvember, og sýnir hinn vinsæla leik, Sigvaldi Kaldalóns, í félagsheimilinu klukkan 20:00. Leikurinn var frumsýndur árið 2013 og naut mikilla vinsælda og snýr nú aftur á svið og hefur meðal annars verið sýndur í Hannesarholti í Reykjavík undanfarið við góðra undirtektir.
Verkið fjallar um tónskáldið og doktorinn Sigvalda Kaldalóns sem átti litríka ævi. Hann tók við læknisembætti í einu afskekktasta læknishéraði landsins fyrir vestan. Víst var lífið þar ekki eins og í einföldum söngleik eins og segir í umsögn um verkið á Facebooksíðu Kómedíuleikhússins. Engu að síður samdi Sigvaldi margar af sínum helstu sönglagaperlum á Kaldalónsárunum. Í verkinu er rakin þessi litríka saga tónskáldsins fyrir vestan og fluttar helstu perlur hans, s.s. Ég lít í anda liðna tíð, Sofðu góði sofðu, Þú eina hjartans yndið mitt, Svanurinn minn syngur og mörg fleiri.
Höfundur/leikari: Elfar Logi Hannesson
Hljóðfæraleikari: Sunna Karen Einarsdóttir
Leikmynd/búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson
Uppbyggingasjóður Vestfjarða styrkir Kómedíuleikhúsið.
Miðasölusími: 847 1852
Sjá nánar um viðburðinn á Facebook:https://www.facebook.com/events/256990758348777/.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.