Kaldavatnsskortur á Sauðárkróki

Vatnsból Skagafjarðarveitna í Sandskarði. Mynd: PF.
Vatnsból Skagafjarðarveitna í Sandskarði. Mynd: PF.

Svo mikill er skortur á köldu vatni á Sauðárkróki að farið hefur verið fram á það við fyrirtæki sem nota mikið vatn, að þau dragi úr framleiðslu eða minnki vatnsnotkun á annan hátt. Lítil úrkoma í vetur og vor er orsakavaldurinn.

„Það er mikil vatnsnotkun á Sauðárkróki, sérstaklega hjá fyrirtækjum í matvælaframleiðslu í bænum og höfum við þurft að óska eftir því við fyrirtæki að þau stöðvi framleiðslu fyrr á daginn eða minnki framleiðsluna til að bregðast við þessu ástandi. Vatnsbúskapurinn í lindunum sem við erum að nýta við Sauðárkrók er ekki góður sökum lítillar úrkomu í vetur og vor, segir Indriði Þór Einarsson, sviðstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs Svf. Skagafjarðar.

„Þetta er grafalvarlegt mál og mjög slæmt fyrir okkur,“ segir Hilmar Baldursson, verksmiðjustjóri mjólkursamlags KS. Hann segir erfitt fyrir samlagið að draga úr framleiðslu þar sem ekki sé heppilegt að geyma mjólkina. Farið var í ýmsar aðgerðir til að reyna að draga úr vatnsnotkun en Hilmar segir ástandið slæmt og ekki bjóðandi fyrirtækjum á svæðinu.

Í sama streng tók Ásmundur Baldvinsson, yfirmaður landvinnslu hjá Fisk Seafood. „Við getum ekkert dregið úr vinnslu eins og er þar sem við erum með mikið hráefni sem við þurfum að klára. En við gripum til ákveðinna ráðstafana til að spara vatn.“

Meðal þeirra er að nú er öllu hráefni keyrt frá fiskiðjunni í þurrkhúsið í körum en annars er því skotið eftir rörum ásamt miklu magni af vatni. „Þetta er aukin vinna fyrir okkur og þar af leiðandi aukinn kostnaður. Við skoðum einnig aðrar leiðir.“

„Við erum að leita leiða við frekari vatnsöflun og mun það skýrast á næstu dögum hvað gert verður til að bregðast við þessu ástandi,“ segir Indriði Þór

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir