Kálfshamarsvík - Myndir
Það þarf ekki alltaf að leita langt til að heimsækja náttúruperlur á landinu okkar góða, þar sem fjölbreytileikinn ræður ríkjum og náttúran bíður alltaf upp á eitthvað nýtt fyrir augað. Kálfshamarsvík á Skaga er dæmi um fallegan áningarstað á Norðurlandi vestra þar sem vert er að staldra við, líkt og blaðamaður Feykis gerði nú í vikunni.
Samkvæmt frjálsa alfræðivefnum Wikipediu er Kálfshamarsvík lítil vík norðarlega á vestanverðum Skaga. Þar var áður lítið þorp og nokkur útgerð en víkin er nú í eyði.
Fyrsta húsið í Kálfshamarsvík var reist rétt eftir aldamótin 1900. Á fyrstu áratugum 20. aldar og fram undir 1940 var mikil útgerð í Kálfshamarsvík og um1930 var 151 maður heimilsfastur þar. Í þorpinu var samkomuhús og skóli og einhverjar smáverslanir. Fiskleysi og þjóðfélagsbreytingar á stríðsárunum urðu til þess að fólki fækkaði og síðustu íbúarnir fluttu burt veturinn 1947-1948. Fluttist útgerðin og fólkið aðallega til Skagastrandar.
Á Kálfshamarsnesi er viti sem upphaflega var reistur 1913 en endurbyggður 1939. Stuðlaberg setur svip sinn á umhverfið í Kálfshamarsvík.
Gaman er að sjá hversu vel sögunni eru gerð skil með merkingum í víkinni. Þar er mikið af tóftum og grunnum húsa sem þar hafa og eru þær flestar ef ekki allar merktar og gerð grein fyrir húsunum sem þarna stóðu og íbúum þeirra.
.