Kalt framundan

Það viðrar ekki vel norðanlands næsta sólarhringinn samkvæmt Veðurstofu Íslands en gert er ráð fyrir norðaustan 8-15 m/s og rigningu, en slyddu til fjalla er líður á. Norðan 5-10 m/s á morgun og dregur úr úrkomu. Hiti 4 til 8 stig, en við frostmark í innsveitum í nótt. Í athugasemdum veðurfræðings segir að búast megi við hvössum vindstrengjum við fjöll suðaustantil síðdegis og í nótt.

 

Spáin næstu daga fyrir landið:

Á fimmtudag: Norðlæg átt, 8-15, hvassast við NA- og A-ströndina. Rigning NA-til og slydda til fjalla, en léttir til S- og V-lands. Dregur úr vindi og úrkomu seinnipartinn. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast syðst. Líkur á næturfrosti inn til landsins.

Á föstudag: Fremur hæg norðlæg átt og víða bjart veður, en strekkingur við NA-ströndina og dálítil væta fyrir hádegi. Hiti svipaður og allvíða næturfrost.

Á laugardag: Norðaustan 13-18 SA-til en annars hægari austlæg átt. Víða bjart veður og áfram svalt í veðri.

Á sunnudag: Minnkandi austan og norðaustanátt, þykknar upp með vætu A-lands, en áfram bjart V-til. Hlýnandi veður.

Á mánudag: Útlit fyrir austanátt með vætu og mildu veðri.

Á þriðjudag: Snýst í norðanátt með vætu norðaustantil, en björtu verði suðvestanlands. Kólnandi veður.

Fleiri fréttir