Kalt í dag en hlýnar örlítið á morgun
Ökumenn eru hvattir til að vara sig á hálku á vegum þar sem nú hefur kólnað snögglega í veðri eftir að stormur reið yfir landið í gær, með mikilli úrkomu. Samkvæmt heimasíðu vegagerðarinnar er víða krapi, hálka eða hálkublettir sem ber að vara sig á.
Í dag verður norðan 5-10 m/s, en hægari vestlæg átt síðdegis og vægt frost, skýjað að mestu. Á morgun á hiti að hanga rétt ofan frostmarks, þá verður hæg suðlæg eða breytileg átt og bjartviðri.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Suðaustan 5-10 m/s á SV- og V-landi og þykknar upp, en 8-13 um kvöldið, rigning og hiti 2 til 7 stig. Hægari vindur og bjart veður NA- og A-lands og vægt frost.
Á fimmtudag:
Sunnan 5-10 m/s með vætu, en léttir til á NA- og A-landi seinnipartinn. Hiti 2 til 8 stig.
Á föstudag:
Suðlæg átt 5-10 m/s og skúrir eða jafnvel slydduél, en bjartviðri NA-til á landinu. Hiti svipaður.
Á laugardag:
Austlæg átt og skúrir eða slydduél í flestum landshlutum. Hiti 1 til 7 stig.
Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir austlæga átt með úrkomusömu veðri.